18janúar

Endurvaking bangsans

Já þá er skólinn byrjaður aftur á fullum krafti eftir langt og erfitt jólafrí. Ekki var nú mikið gert í þessu jólafríi nema bara haldið sig heima í hlýjunni og horft á einhverjar spennandi og fyndnar myndir. Eftir skólasettninguna hefur mikið verið í gangi, skólaganga, reyna að vakna á morgnana eins og manni er skylt að gera fyrir skólann, lært og kveikt á heilanum aftur svo að hægt sé að taka eftir í skólanum. Já þess þarf, ekki er hægt að sitja bara inní skólastofu hálf dauður með slefið lekandi niður á gólf af heimsku.
Enþá er maður að reyna að komast áfram með nokkrar sögur og lesa nokkrar sögur líka, en það gengur nú allt eins og það gengur, ekki illa og ekki vel.
Já, það er nú voða lítið til að segja frá í þessu blessaða bloggi nema ég er enþá að reyna að vekja upp þessa blessuðu síðu. Það kemur von bráðar ný skoðanakönnun og mæli ég eindregið með að þið takið þátt í þeirri skoðanakönnun, hún bendir til endurvakningu þessarar blessuðu blogg síðu.

Þetta verður ekki lengra í bíli og hafið það gott ;)

 

18. janúar 2009 klukkan 14:44
Aron Kristinn Lýðsson
Almennt
1 athugasemd
12desember

Blogg í bili svo að þessi síða sé ekki allveg dauð.

Jæja, það er nú kannski ekki hægt að segja neitt svakalega mikið, það er ekkert mikið búið að gerast síðan jólafríið byrjaði, mest bara hangið heima með tónlist í botn að drepa köttinn úr hræðslu.
En það er nú líka farið aðeins út á röltið en lítið annað gert en bara hangið heima. Það er nú gaman að segja frá því að við Siggi ákváðum soldið skemmtilegt með trommusettin okkar. Við settum mitt saman við hans sem kom út með furðulegum afleiðingum, Alls ekki ljótum, bara furðulegum. En það er svosum mjög lítið hægt segja meira í bili þannig ég kveð ykkur í bili. Ég reyni að koma með lengri blogg og innihaldsríkari oftar núna.

Svo ég kveð í bili. Bless

 

12. desember 2008 klukkan 15:42
Aron Kristinn Lýðsson
Almennt
Engin athugasemd
28júní

Já... kannski soldið seint að blogga núna....


 Já... kannski soldið seint að blogga núna en what the heck, það er ekkert merkilegra að gera á þessum laugardegi. En svo er það sem ég ættlaði að blogga um voru bíladagar en ég gleymdi að blogga um þá þegar ég kom frá AK þannig ég er ekki mikið að nenna að fara að blogga um þá núna (er búinn að gleyma mest öllum smáatriðum (sem voru allavega ekki það mörg)).

Þannig ég blogga bara um þessa liðnu viku. Hún hefur verið bæði litrík og svolítið niðurdrepandi en það er annað mál (niðurdrepandi hlutinn) Þessi blogg sem ég skrifa hér (þessi fáu) eru mest um litríku hlutina sem hafa hent mig..

En það sem ég hef þá aðalega að segja frá er gærdaguirnn því klaufabárðurinn í sjálfum mér gerði mig af hálfgerðu fífli í lok vinnudags í gær(föstudag) því að ég var svo mikill snillingur að fara á dráttarkúlu á bíl á ferð, en það sem ég ákvað að gera þegar ég var kominn á kúluna var að stökkva af bílnum á ferð líka og það endaði með því að ég rispaði á mér olnbogann og fékk heljarinnar kúlu á hnéð, en ekki var það nóg, bakið á mér fór líka í smá klikk því núna er ég að drepast í bakinu:P en það er annað mál. En svona endaði vinnudagurinn hér mér á föstudegi og varð það nún bara nokkuð skemmtilegur endi.

En ekki hef ég neitt mikið að segja í bili svo, ég skrifa bara eitthvað meir síðar. ;)
28. júní 2008 klukkan 20:01
Aron Kristinn Lýðsson
1 athugasemd
18apríl

Ekki mikið að segja en kannski eitthvað smávegis.

Já ég er með eitthvað blogg hérna, ég hef ekki bloggað í langann tíma svo hérna kemur eitthvað meira og kannski eitthvað mun innihaldsríkara, og þá segi ég bara KANNSKI. Og já ég gleymi kannski að segja að ég ættla að reyna að halda mig við að blogga mánaðarlega um eitthvað skemmtilegt.

En það er nú ekki mikið búið að gerast í langann tíma, bara það að ég er búinn að fara í klippingu, í fyrstaskipti í svona um 4-5 ár. Hárið var jú orðið ansi flókið og það var komið allveg niður á mitt bak.

Ég er í miðju kafi í skólanum bara. Það er nú ekki hægt að segja neitt mikið meira um það.
Ég er að vinna í annari sögu, ég skal kannski setja hana inn þegar ég klára hana, en það verðu kannski svolítið langt í það en það kemur nú bara allt í ljós.

Ég er að skipta um trommu diska línu, ég er að reyna að losa mig við þá sem ég á núna, svo ef þið þekki einhvern sem er að reyna að finna sér trommu diska má sá sami senda mér mail á aronkl@strik.is


En ég ættla ekki að hafa þetta neitt mikið lengra að sinni, svo bless bless.

18. apríl 2008 klukkan 23:21
Aron Kristinn Lýðsson
Engin athugasemd
18febrúar

Blogg já, það er eitthvað sem ég hef verið beðinn um.

ég var hérmeð beðinn um að blogga fyrir ykkur sem lesið þetta, sem ég held að séu ekki margir, en hvað með það, það er eitthvað sem maður veruð bara að lifa mér.
Svo hér með byrjað það blogg. En eins og stendur er maður bara í skólanum eða þá eins og ég myndi frekar orða það, same shit different day.
En mig langar bara svolítið að gera eitt og prufa svolítið hér á þessari síðu. Mig langar bara að sjá hvort það virki eða ekki. En ég er auðvitað að tala Trivia. Þessi trivia gengur semsagt þannig að ég kannski set inn texta úr annaðhvort bíómynd, þætti eða þá lagi og það kæru lesendur reynið annað hvort að bara giska á úr hverju textinn er,hvort þetta sé úr bíómynd,þætti eða lagi?
18. febrúar 2008 klukkan 21:11
Aron Kristinn Lýðsson
1 athugasemd
04desember

Er kannski ekki best að skella einu nýju bloggi á þessa blessuðu síðu mína..

Já eins og titillinn mendir til þá er ég að skella einu bloggi á þessa blessuðu síðu mína og það er nú svo lítið síðan það gerðist.

Svo það er er svo sum ekkert mikið af merkilegum hlutum búnir að gerast svo það er ekki hægt að segja frá neinu miklu. En það sem mig langar helst að tala um núna er þetta helv. bann á Torrent síðum, hvað er málið með þetta? Þessar nýju torrent síður sögðu að það mætti ekki dreifa íslensku efni hjá þeim svo afhverju eru þeir að loka þeim. Það er bara þeirra mál hjá smáís og þessum fyrirtækjum sem gefa út svona efni á DVD og diska og svoleiðis að hafa þetta svo viðbjóðslega dírt. Ef þeir ættu að gera eitthvað til að minka download hjá fólki að lækka verð á DVD og tónlista diskum. Það eru svo margir krakkar sem meiga ekki vinna og sem eiga lítinn sem engann pening til að kaupa sér DVD eða tónlista diska. Eins og til dæmis það er einn strákur hér á selfossi sem tekur að sér að fara út að ganga með hunda fyrir fólk á hundrað krónur fyrir hund. Ok ég viðurkenni það að það er rosalega góð hugmynd en krakkar eiga ekki að þurfa að ganga í gegnum svona. Svo heyrði ég það einhverstaðar að krakkar undir 16 ára mættu ekki vinna, það ætti að vera bannað svoleiðis. Því hér í Bónus á selfossi eru krakkar undir á 14 ára aldri að vinna.. ef það er ritað í lögum að börn undir 16 ára aldri meiga ekki vinna á svona stöðum hvar eru þá yfirvöld að tala við verlsunastjórann í Bónus á Selfossi, sem nefnist Björgvinn eitthvað, mér er svo sum allveg sama um hvað hann heitir enda rífur hann kjafti við starfsmenn sem vinna betur en hann og reyna segja honum eitthvað og reyna að vera almennilegir við hann, hvar er virðingin hjá þessum manni við annað fólk.

En já ég lenti allt í einu um að tala um bónus, ég fór úr öðru í annað, svo ég held ég haldi áfram með torrent og bann á torrent síðum á netinu og að krakkar á unglings árum sem eiga ekki efni á DVD og tónlista diskum í dag vegna þessu hinim háa verði á þessum hlutum. En eins og staðan er í dag þá eiga þessir krakkar tvo kosti og það er að suða í foreldum sínum um pening eða að downloada þessu.. og ef krakkar suða í foreldum sínum um pening fyrir DVD eða tónlista diskum þá fara foreldrarnir á hausinn og munu kannski ekki eiga nægann pening fyrir mat út mánuðinn en svo þessir krakkar sem eiga þann kost að downloada eiga þennan betri kost en samt ekki vegna þess að það er búið að loka öllum íslenskum torrent síðum.

En ég hef ekkert meira að tala um svo ég segi bara takk fyrir mig:)
04. desember 2007 klukkan 15:51
Aron Kristinn Lýðsson
Engin athugasemd
25október

Blogg og blogg og blogg?

Ég er að spá í að blogga um ljóskur og hnakka í skólanum. Já það semsagt kom fyrir í morgun að einhverjir hnakkar tóku borðið okkar í skólanum. Svo það leið til þess að við tveir vinirnir tókum okkur til og náðum okkur í borð hjá Þorlákshafnasvæðinu en þá varð það til þess að við heyrðum frá þessum hnökkum kvörtun um að við værum að taka borð. Ég bara spyr bara, afhverju í anskotanum er verið að kvarta, þeir tóku okkar borð og eru að kvarta í okkur að við séum taka borð frá öðrum, ef eitthvað er þá ættu þeir að stein halda kjafti og leifa okkur að fá okkar borð eða þá að leifa okkur að ná í það aftur hvað er málið? Ég bara spyr.

En ég hef ekkert meira að segja þannig, bless bless og gangi ykkur vel með allt hitt
25. október 2007 klukkan 11:37
Aron Kristinn Lýðsson
2 athugasemdir
19október

Long time no... writen or something like that

Já, ég ákvað að skella inn einu bloggi hérna vegna skorts á þeim á þessari síðu svo hér kemur eitt af þeim stuttu og fá orðuðum bloggum mínum svo, ef það er eitthvað sem ykkur langar að vita um hvað hefur verið að gerast í þessum littla heimi mínum þá er það fátt.

En já hvað á ég að segja meira, ég gleymdi nú alltaf að segja ykkur það að ég keypti mér trommu sett en það vita það nú þegar flest allir vinir mínir, enda keypti ég það í sumar, svo er ég líka búinn að kaupa smátterí og aukadót á það og svoleiðis en það er önnur saga til að segja frá, sem ég geri ekki vegna hún er ekki það spennandi.

Já ég er kominn með eina æðislega í hald, en það er líka soldið síðan það gerðist, að verða sjö mánuðir, en það er annað að segja seinna.

Ég hef nú ekkert meira nýtt eða "nýtt" að segja.. svo ég segi bara að ég ættla að reyna halda þessari síðu virkari núna. En það á eftir að verða svolítið erfit vegna skóla og vinnu. En ég reyni mitt besta við að halda henni sem mest uppi og ég get en þar að þangað kemur.


Heyri í ykkur seinna og góða nótt og já ég skal setja einhvertíma mynd af trommu settinu eins og það er í dag og svo þegar ég verð búinn að setja alla diska sem ég ættla að kaupa og svoleiðis við það.

En nú segi ég góða nótt eða góðann dag (fer eftir því hvenar þið lesið þetta en jamm skrifa seinna ;))
19. október 2007 klukkan 00:56
Aron Kristinn Lýðsson
Engin athugasemd
26mars

Eintak

Jæja, kallinn skellti sér á eitt eintak af nýjasta LIVE disknum með KoRn eða KoRn : unplugged og verð ég að segja að þetta er allveg ÆÐISLEGUR diskur. Ef ég ætti að gefa honum einkun frá 0-10 myndi ég gefa honum hiklaust 9-9.5, þetta er allveg æðislegt hverjir þeir ná að spila þessi þungu lög aucostic, og það að það eru allveg rosalega margir að spila með þeim á þessum tónleikum.

En ekki hef ég meira að segja frá þessu verki mínu, en öðrum málum hef ég að segja frá líka. En skeppnan skellti sér á Number 23 á laugardaginn (þegar ég skrifaði þetta yndislega blogg) og verð ég að segja að þessi mynd var allveg yndislega, skemmtilega, frábær. En ekki ættla ég nú að segja mikið frá þessari mynd en ég mæli óhikandi með þessari mynd, í þessari mynd fer hann snjalli og yndislegi leikari Jim Carrey á kostum. Og ef einhverjir myndu halda að þessi mynd er bara endalaust alvarleg og enginn húmor í henni, þá skjátlast ykkur, því það er mjög skemmtilegur húmor í þessari mynd svona frá byrjun og bara auðvitað þar til þessi myn fer að verða sem alvarlegust. En ef ég á að gefa þessari mynd stjörnur, á skalanum 0-5, þá er það hiklaust 5 strjörnur.

Ekki hef ég meira að segja í bili handa ykkur þannig ég segi bara gjörið svo vel og njótið vel þetta sjóðheita blogg. Og passið ykkur vatnið gæti verið blaut og eldurinn heitur
26. mars 2007 klukkan 20:53
Aron Kristinn Lýðsson
3 athugasemdir
13febrúar

Bara ein saga

Bara ein saga



Smávegis hræðsla

 

Ég geng í mínum rólegheitum heim úr bíói, ég er með tónlistina í gangi svo ég drepist ekki úr leiðindum á leiðinni heima. Það er rosalega gott að hafa tónlistina svona í gangi á meðan maður er á röltinu heim úr bíói eftir að maður sá einhverja rosalega spennu mynd.

Eftir að ég er búinn að ganga svona helminginn heima þá er ég farinn að halda að einhver sem fyrir aftan mig að elta mig. Ég geri ekker nema bara held áfram heim á leið og er í mínum þægindum með tónlistina í botn. Ég er farinn að syngja smá með því þetta er svo rosalega flott lag. Mér hefur aldrei fundist þetta lag neitt leiðinlegt eða neitt þessháttar. Þetta lag passaði svo rosalega vel við skapið sem ég var í.

Eftir að ég er búinn að labba örlítið lengra finn ég aftur fyrir þessari tilfinningu að einhver væri að elta mig. Ég sný mér við og athuga það í þetta skiptið, ég sé engann og held bara áfram mína leið. Eftir örlítið lengra röllt slökknar allt í einu á tónlistinni. Ég lít á I-Podinn minn og sé að batteríið er bara búið, þannig ég tek hann bara úr vasanum mínum, rúlla headphonunum og sting spilaranum aftur í vasann. Allt í einu heyri ég eins og einhver sé fyrir aftan mig. Ég sný við og lít við til að sjá hvort einhver væri þarna, engann sé ég þannig ég held bara áfram heim.

Eftir mikla göngu og smá spennu kemst ég heim.

 

Eftir að ég kem heim fer ég beinustu leið inní herbergi, ég fer úr buxunum mínum og í náttbuxurnar mínar og sest við tölvuna. Ég reyni að hafa sem minnstann háfað svo ég myndi ekki vekja ömmu mína og afa.

Ég opna fartölvuna og sest í skrifborð stólinn minn og við skrifborðið.

Mér er farið að líða svo vel með þessa graðhesta tónlist í botni í eyrunum að ef þetta væru hátalarar þá gætu þetta allveg eins verið tónleikar í Eygilshöll. Síminn er á borðinu við tölvuna. Enginn var búinn að senda mér nein skilaboð eða hringja í mig á meðan ég var á leiðinni heim úr bíóinu. Allt í einu sé ég að það er komin ein ný skilaboð ég tek upp símann og athuga hver þetta er sem era ð senda mér skilaboð svona seint. Skilaboðin sögðu “Vasstu orrinn hræddur?

Ég horfi á skilaboðin eins og þetta sé eitthvað grín frá vini mínum. Hann fékk bara að nota símann hjá einhverri vinkonu sinni sem ég þekkti ekki.

Ég legg símann frá mér  og held áfram í tölvunni og hlusta á mína fögru tónlist.

Nokkrum mínútum síðar hringir síminn, Ég svara símanum og segi blíðlega og kurteysislega Halló.

Manneskjan hinum megin á línunni spyr hvort ég hafi verið hræddur áðan þegar ég var að labba heim úr bíóinu. Ég svara og segi að ég hafi ekki verið hræddur og að þetta hafi bara verið stein sem ég sparkaði óvart frá mér.

Manneskjan segir að ekki hafi verið svo, að þetta hafi verið hún og hafi ættlað að ráðast á mig og rífa úr mér garnirnar. Ég skelli á og slekk á símanum. Eftir að hafa verið í tölvunni í klukkutíma slekk ég á tölvunni og fer að sofa.

 

Þegar ég vakna um morgunninn fer ég að símanum og kveiki á honum og athuga hvort einhver hafi reynt að hringja í mig. Ég sé þá að þessi manneskja sem sagðist hafa elt mig að hún hafi reynt að hringja 29 sinnum um nóttina. Ég horfi á símann með óttaslegnum augum.

Eftir að ég er betur vaknaður, stand ég upp og klæði mig því það er skóli eftir örfáar mínútur.

Þegar ég kem í skólann, vel nærður og vel vaknaður, kemur vinur minn að mér og spyr, vastu hræddur á leiðinni heim. Ég horfi á hann og spyr hann hvort þetta hafi verið hann að elta mig og hringja í mig. Hann hlær og játar það. Ég horfi á hann mjög reiður og pirraður útí hann. Eftir að hann hættir að hlægja horfi ég á hann mjög reiður og lem hann í magann. Hann spyr mig afhverju ég hafi gert þetta.

Ég svara og segi að þetta hefi verið vegnaþess að hann hafi pirrað mig í gærkvöldi með þessu smsi og þessu símtali. Hann hlær þá bara og fyrirgefur fyrir að hafa hrætt mig smávegis.





Hope you enjoy

13. febrúar 2007 klukkan 18:30
Aron Kristinn Lýðsson
Engin athugasemd

Auglýsing

Könnun

Ætti þessi síða að hafa meira um upplýsingar um hljómsveitir?

Prófíll

  • Nafn: Aron Kristinn Lýðsson
  • Atvinna: Nemi
  • Hjúskaparstaða: Föstu
  • Um mig: Ekki hægt að segja neitt mikið, nema það að ég er metal haus mér líður vel ó lífinu og jamm...
  • Annað: Slartibartfarts

Innskráningar kubbur

Textareitur

Hvað með að hafa eitthvað en ný síða, það er svo rosalega old og leiðinlegt.. en hvað ætti að hafa í staðinn, það er spurning.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...